Moroccanoil uses cookies in order to give you a better user experience. For more information about what cookies are and how we use them, please visit our privacy policy.
POWER PERFORMANCE IONIC HAIR DRYER
Þessi hágæða hárblásari inniheldur einstaklega hraðvirkan mótor og þróaða jónatækni sem færa þér mjúkan blástur á stuttum tíma, líkt og þú værir í stólnum hjá fagmanninum.
Lykilatriði
Hannaður og framleiddur á Ítalíu með það fyrir augum að mæta sérhæfðum kröfum fagfólks.
Endingargóður, AC mótor er einstaklega hraðvirkur svo þurrkunartíminn er styttri.
Háþróuð jónatækni stuðlar að því að varðveita rakann í hárinu og minnka stöðurafmagn.
99.9% Nano Silver grill eykur gljáa.
Mjúkt og þægilegt grip og hljóðlát, létt hönnun. 3 hitastillingar, 2 hraðastillingar og kæliskot fyrir sérhæfðan blástur. Inniheldur stút sem styttir þurrkunartímann og dreifara sem eykur loftflæðið og hentar einstaklega vel fyrir liðað hár.
- Stingdu tækinu í samband í innstungu með viðeigandi rafmangsstraumi. Það má stjórna hitanum og hraðanum að vild með því að nota efri og neðri rofana.
- Lægri rofinn stýrir hraða viftunnar. Þegar rofinn er í vinstri stöðu er slökkt á viftunni. Færið lægri rofann í miðjuna til að kveikja á lægri stillingu viftunnar eða til hægri til að koma henni á mesta hraðann.
- Efri rofinn stýrir hitanum. Þegar rofinn er stilltur til vinstri er slökkt á hitanum. Færið efri rofann í miðjuna til að fá lágan hita, eða til hægri fyrir mikinn hita.
- Kæliskotsstillinguna má nota til að festa greiðslu eftir blástur. Ýtið einu sinni tl að kveikja á kælingunni og aftur til að slökkva á henni.
- Gætið þess eftir notkun að báðir rofarnir séu stilltir til vinstri (O) áður en tækið er tekið úr sambandi.